Upptaka
Fyrri hluti ráðstefnunar
Seinni hluti ráðstefnunnar
Myndir
Hér má nálgast myndir frá ráðstefnunni
Í ár eru liðin 20 ár frá lögfestingu Mannréttindasáttmála Evrópu á Íslandi með lögum nr. 62/1994. Af því tilefni efna Mannréttindastofnun Háskóla Íslands og embætti umboðsmanns Alþingis til ráðstefnu, þar sem rætt verður um ýmsa áhugaverða fleti á stöðu sáttmálans svo og áhrif lögfestingar sáttmálans á dómaframkvæmd, stjórnsýslu og störf lögmanna. Ráðstefnan var haldin föstudaginn 24. október kl. 13-16.10 í Öskju, stofu 132.
Dagskrá
kl. 13.00 Opnun ráðstefnu
kl. 13.05 Ávarp, Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis
kl. 13.20 Davíð Þór Björgvinsson, prófessor við Lagadeild HÍ og fyrrv. dómari við MDE: Fordæmisgildi dóma MDE
kl. 13.45 Ragnar Aðalsteinsson hrl, lögmaður á lögmannsstofunni Réttur:
Áhrif MDE á dómaframkvæmd frá lögfestingu MSE.
kl. 14.10 Ásgerður Ragnarsdóttir hdl., lögmaður á Lex lögmannsstofu:
Áhrif MSE á störf lögmanna
kl. 14.35 Fyrirspurnir og umræður
kl. 14.45 Kaffihlé
kl. 15.00 Róbert R. Spanó, dómari við Mannréttindadómstól Evrópu:
Áhrif MSE á störf umboðsmanns Alþingis og verklag í íslenskri stjórnsýslu
kl. 15.25 Oddný Mjöll Arnardóttir, prófessor við Lagadeild HÍ:
Mannréttindasáttmáli Evrópu- og landsréttur - horft til framtidar
kl. 15.50 Fyrirspurnir og umræður
kl. 16.10 Ráðstefnuslit
Ráðstefnustjóri: María Thejll, forstöðumaður Mannréttindastofnunar HÍ