Námskeið fyrir dómara - Tjáningarfrelsi samkvæmt 10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu
Tími: | Föstudaginn 5. desember 2014, kl. 9-15 |
Kennari: | Davíð Þór Björgvinsson, próf. og fyrrv. dómari við Mannréttindadómstól Evrópu |
Staðsetning: | Lögberg, stofa 201 |
Markmið og tilgangur námskeiðs
Á námskeiðinu verður fjallað um 10. gr. mannréttindasáttmálans og þær meginreglur sem í 1. mgr. 10. gr. felast. Þá verður fjallað um takmarkanir á tjáningarfrelsinu samkvæmt 2. mgr.
Áhersla verður lögð á að skoða nýlega dómaframkvæmd mannréttindadómstólsins, m.a. í ljósi dómaframkvæmdar á Íslandi.
Einkum verður lögð áhersla á dóma á eftirtöldum sviðum:
a) Ærumeiðingar og samspil 10. gr. og 8. gr. sáttmálans um friðhelgi einkalífs.
b) Réttindi og skyldur blaða- og fréttamanna.
c) Vernd heilsu manna og siðgæðis.
d) Takamarkanir á tjáningarfrelsi til að tryggja vald og óhlutdrægni dómstóla.
Að síðustu verður farið yfir það nýjasta og áhugaverðasta frá Mannréttindadómstólnum