Header Paragraph

Dómareifanir Mannréttindadómstóls Evrópu, 2. hefti 2015, komið út

Image
Lögberg

Dómareifanir Mannréttindadómstóls Evrópu, 2. hefti 2015, er komið út og er aðgengilegt hér:

Dómareifanir Mannréttindadómstóls Evrópu, 2. hefti 2015.

Mannréttindastofnun Háskóla Íslands hefur frá árinu 2005 gefið út tímarit með dómareifunum Mannréttindadómstóls Evrópu. Þar eru reifaðir valdir dómar sem taldir eru hafa sérstakt gildi fyrir túlkun ákvæða sáttmálans. Þá eru teknir með dómar sem hafa sérstaka þýðingu fyrir íslenskan rétt, einkum í málum gegn hinum Norðurlöndunum þar sem oft er til umfjöllunar löggjöf eða ákvarðanir sem eiga hliðstæðu í íslenskri réttarframkvæmd. Loks eru birtar í heild sinni í íslenskri þýðingu ákvarðanir og dómar í kærumálum gegn íslenska ríkinu sem áður voru aðeins birtir á heimasíðu innanríkisráðuneytisins, sem hefur styrkt útgáfuna frá upphafi.

Frá og með 1. hefti 2013, hefur útgáfan aðeins á rafrænu formi. Heftin eru einnig aðgengileg á vef stofnunarinnar í epub, sem m.a. á að auðvelda niðurhal og skoðun í iPad og símum.