Header Paragraph

Námskeið með Róbert R. Spanó 16. september

Image
Lögberg

Réttarfar í sakamálum í ljósi 6. gr. Mannréttindasáttmálans, er heiti endurmenntunarnámskeiðs á vegum Mannréttindastofnunar þann 16. september nk. Kennari er Róbert R. Spanó, dómari við Mannréttindadómstólinn.

Farið verður yfir helstu meginþætti dómaframkvæmdar MDE um 6. gr. MSE í sakamálum. Gildissvið reglunnar í sakamálum verður útskýrt. Þá verður fjallað um meginregluna um réttláta málsmeðferð samkvæmt 1. mgr. 6. gr. og samspil hennar við lágmarksréttindi þau sem mælt er fyrir um í 3. mgr. Sérstaklega verður vikið að meginreglunni um jafnræði málsaðila og um rétt til aðgangs að gögnum.

Gerð verður grein fyrir meginreglu 2. mgr. 6. gr. um að hver maður skuli talinn saklaus uns sekt hans er sönnuð að lögum og nánar fjallað um einstakar efnisreglur 3. mgr. 6. gr. Loks verður gerð grein fyrir almennum starfsaðferðum dómstólsins og farvegi kærumála þegar þau berast dómstólnum, þ.e. einkum mati á hvort máli skuli vísað frá, það sent aðildarríki til athugasemda og um efnismeðferð mála.