Þriðja hádegismálþing Mannréttindaskrifstofu Íslands á árinu verður haldið föstudaginn 31. maí klukkan 12:00-13:00 í Fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins. Þetta málþing, sem ber heitið „Réttindi eldra fólks“, er haldið í samstarfi við Mannréttindastofnun Háskóla Íslands. Á málþinginu munu Sigrún Huld Þorgrímsdóttir, sérfræðingur í öldrunarhjúkrun, og Brynhildur G. Flóvenz, formaður stjórnar Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands, flytja erindi um mikilvægi og áskoranir réttinda eldri borgara. Margrét Steinarsdóttir framkvæmdastýra Mannréttindaskrifstofu Íslands mun stýra málþinginu og umræðum.

Dagskrá:

12:00-12:20 "Mannréttindi veikra aldraðra"
Sigrún Huld Þorgrímsdóttir, sérfræðingur í öldrunarhjúkrun

12:20-12:40 "Persónufrelsi og sjálfsákvörðunarréttur eldra fólks"
Brynhildur G. Flóvenz, formaður stjórnar Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands

12:40-13:00 Umræður og spurningar úr sal

Málþingið er opið öllum og við hvetjum alla áhugasama um réttindi og velferð eldri borgara til að mæta - unga sem aldna! Aðgengi að Fyrirlestrasalnum er gott og viðburðurinn verður tekinn upp og síðar gerður aðgengilegur á vefsíðu og facebooksíðu Mannréttindaskrifstofunnar.

Image
Réttindi eldra fólks